Vegvísir fyrir það sem koma skal í heimi sjálfbærnilaga og -upplýsingagjafar

Lög og upp­lýs­inga­gjöf

Síðustu mánuði hefur farið ítarleg vinna á vettvangi Festu með fólki úr samfélagi Festu og tengdum aðilum.

Afrakstur vinnunnar skilar sér í vegvísi í tengslum við sjálfbærnilöggjöf Evrópusambandsins (ESB) og EES samningsins. Vegvísirinn nær yfir nýmæli í löggjöf og aðferðafræði um sjálfbæran rekstur fyrirtækja og ábyrgar fjárfestingar. Reglugerðir Evrópusambandsins, frumvörp sem kynnt hafa verið varðandi innleiðingu gerða ESB hér á landi, auk annars hagnýts efnis má finna í vegvísinum.  Fókusinn er á hlutverk fjármagns sem hreyfiafl á sjálfbærnivegferð fyrirtækja í raunhagkerfinu.

 

Sjálfbærniupplýsingagjöf

Hér er aðgengilegt skjal um sjálfbærniupplýsingagjöf sem má lýsa sem „byrjunarpunkt“ fyrir fyrirtæki sem vilja huga að sjálfbærniupplýsingagjöf. Eðlilega mun sú vinna leiða hvert og eitt fyrirtæki í mismunandi átt eftir starfsemi fyrirtækisins.

Takk öll sem tókuð þátt í líflegum umræðum á Janúarráðstefnu Festu 2023! Hér finnur þú glósur frá þeim. 

 

Niðurstöður könnunar

Í upphafi árs 2023 gerðu Deloitte og Festa könnun meðal stjórnenda aðildarfélaga Festu.

Markmiðið með könnuninni var að fá innsýn í helstu aðgerðir og áætlanir stjórnenda fyrirtækja þegar kemur að sjálfbærni og loftslagsmálum. Niðurstöðurnar voru kynntar á Janúarráðstefnu Festu og má nú nálgast hér.

 

Miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni

Mennta­veg­ur 1
101 Reykja­vík
festa@sam­felagsa­byrgd.is